Fréttir

Ung­menna­mótið í raf­í­þróttum hafið

Ung­menna­mótið í raf­í­þróttum hafið

27.04.2024 Ungmennamót 2024

KIA-Ungmennamótið í rafíþróttum, Íslandsmeistaramót grunnskólanema, er í fullum gangi yfir helgina 27.-28. apríl. 

Keppt verður í leikjunum Fortnite, Valorant, Minecraft og Fall Guys. Mótið hófst á laugardagsmorgni og spilað var til 16:00.

Dagskrá KIA-ungmennamótsins helgina 27. - 28. apríl. - Mynd: RÍSÍ

Seinni hluti mótsins byrjar síðan á morgun, sunnudaginn 28. apríl. Mun mótinu ljúka um 13:00. Allt mótið verður spilað á Arena, þjóðarleikvangi rafíþrótta á Íslandi, en Arena er staðsett á Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.

Engin ummæli enn
Leit