Fréttir
Um helgina á eitt stærsta rafíþróttamót Evrópu, Dreamhack Summer sér stað. Mótið er haldið árlega Í Jönköping í Svíþjóð en búist er við 52.000 gestum yfir helgina.
Nordic Esports Federation bauð Rafíþróttasambandi Íslands á viðburðinn og eru stjórnarmenn RÍSÍ, Atli Már Guðfinnsson og Grímur Freyr Björnsson á viðburðinum. Atli og Grímur munu deila myndefni af mótinu yfir helgina á Instagram síðu RÍSÍ
Hápunktar Föstudagsins
DreamHack og Elgiganten héldu cosplay keppni á aðalsviðinu síðdegis á DreamHack Summer. Keppninni var stýrt af Neah Rayne ásamt dómurunum Elvea, Mierose og Nimdra. Keppendur klæddu sig upp í búninga innblásna af tölvuleikjum og nörda menningu til að sýna ást sína á öllu tengdu tölvuleikjum og norrænni menningu fyrir fullum sal. Brutus Cosplay vann keppnina, Leetrex hlaut annað sætið og Tokah það þriðja.
Á DreamHack aðalsviðinu byrjaði hátíðin með trompi, á sviðinu komu fram Little Sis nora og Firelite.
Little Sis Nora - Mynd: Emma Anderson
Firelite - Mynd: Freja Borne
Samkvæmt staðbundinni hefð skaut aðalstyrktaraðilinn Elgiganten af fyrsta fallbyssuskoti klukkan 13:37 (sem er vísun í "LEET", sem er netslangur fyrir "Elite") með gjöfum til áhorfenda.
Keppni hófst í öllum rafíþróttaviðburðum DreamHack, með samtals $300,000 í verðlaunafé í ESL Challenger, EA SPORTS FC™ 24, og Street Fighter 6 yfir helgina.
Gestir geta fengið að spila á hátíðinni - Mynd: Emma Anderson